Kanski einn þorsk og hálfan steinbít??
Vaknaði upp við sjálfan mig segja hátt og skýrt " samloku með skinku og osti.. og og kók" Þegar eg opnaði augun sat eg í ruminu mínu, með hendina útrétta og benti staðfastlega á hægra hornið í herberginu. Hlítur að hafa verið undaleg sjón.
Hægt að túlka þetta þannig að löngunin í mat sé orðin bísna mikil. ég hef ekki fengið neitt almennilegt að borða í 5 daga núna.. þannig skyndibitaviðbjóður er orðin að draumóra. Ég veit samt satt að segja ekki hvort hefur verið verra.. að vera með hita og óráð þessa daga eða dagskráinn á RUV?? Svei mér þá.. ég vissi ekki að þetta væri svona rosalegt! Vissi að hún væri ekki uppá marga fiska en .. já það er ekkert hægt að segja um þetta. En þetta gengur ekki lengur.. er komin með heiftarleg frákvarfseinkenni á hreyfingu og köldu súrefni.. planið er að dúða sig upp og koma sér af stað.
0 Comments:
Post a Comment
<< Home